Stjórnendur þráða

Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands
Þráður: Stjórnandi verkefnisins. Hefur yfirumsjón með fornleifarannsóknum sem fara fram innan verkefnisins.

James Clark, prófessor í sagnfræði við Exeter háskóla
Þráður: Þróun og útbreiðsla Benediksreglna í Evrópu fyrir siðaskiptin.

Gottskálk Jensson, dósent við Deild Norrænna fræða og málvísinda við Háskólann í Kaupmannahöfn og aðjúnkt við Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands.
Þráður: Rannsókn á miðalda handritum og bókaframleiðslu í Benediktínarklaustrum.

Joe W. Walser III, mannabeinafræðingur við Þjóðminjasafn Íslands.
Þráður: Yfirumsjón með greiningum á mannabeinum, handritum og textílum sem finnast í verkefninu.

Egill Erlendsson, prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.
Hlutverk: Yfirumsjón með rannsóknum tengdum landnotkun og umhverfi sem sjást í fornleifafræðilegum sem og náttúrulegu samhengi innan svæðisins sem var notað í tenglsum við klaustrin.
Ráðgjafar

Alan Outram, deildarstjóri og prófessor í fornleifafræði við Fornleifafræðideild Háskólans í Exeter.
Hlutverk: Mun leiðbeina doktorsnemanum sem mun rannsaka dýrabeinaleifarnar sem finnast við fornleifarannsóknirnar í tengslum við handrit og textíl gerð sem og rannsókn varðandi mataræði í klaustrunum.

Claire Browne
Hlutverk: Yfirumsjón með rannsóknum á miðaldartextíl frá Íslandi.

Janet Montgomery, prófessor í fornleifafræði við Háskólann í Durham.
Hlutverk: Stjórna og hafa yfirumsjón með rannsóknum tengdum ísótópa greiningum á beinagrindum sem finnast við fornleifarannsóknir verkefnisins með það að leiðaljósi að rannsaka matarræði og landfræðilegan uppruna.

Agnar S. Helgason, vísindamaður hjá Íslenskri Erfðagreiningu og prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands.
Hlutverk: Yfirumsjón með greiningum og túlkunum á DNA gögnum tengdum verkefninu.