
Jakob Orri Jónsson, BA, MA og Doktorsgráða gráða í Fornleifafræði. Uppgraftarstjóri.

Lára Janusdóttir, MA nemi.
Lára er með Bs gráðu í viðskiptafræði ásamt MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún stundar nú meistaranám í fornleifafræði við Háskóla Íslands.

Sigrún Hannesdóttir, Doktorsnemi.
Doktorsverkefni Sigrúnar fjallar um nunnuklaustrin sem voru starfrækt í Niðaróserkibiskupsdæmi á miðöldum, þ.e. á Ísland, Grænlændi, Suðureyjum, Mön og í Noregi. Í verkefninu fjallar Sigrún um það hvernig nunnuklaustrin hafa áður verið sett fram í fræðilegum skrifum og að endurskoðar sögu þeirra í samhengi evrópskrar kirkjusögu. Markmið rannsóknarinnar er að nálgast nunnuklaustrin í Niðaróssbiskupsdæmi sem eina heild og varpa þannig ljósi á sameiginlega hugmyndarfræði klausturmenningar kvenna á svæðinu. Rannsóknin svarar þannig bæði ákalli fræðimanna um auknar rannsóknir á klausturmenningu kvenna og þverþjóðlegar nálganir innan þeirra.

Helene Benkert, doktorsnemi við háskólann í Exeter
Helene er dýrabeinafræðingur með MSc frá háskólanum í Sheffield og bráðum einnig doktorsgráðu frá háskólanum í Exeter. Fyrri rannsóknir hennar beindust að hestum í Evrópu á miðöldum, en hún er spennt að rannsaka aðrar tegundir sem hluti af BMN (Between man and nature) rannsókninni. Hún mun greina dýraleifarnar frá þremur klaustrum til að kanna fæðu- og búfjárræktarhætti nunna, munka og leikmanna á Íslandi á miðöldum.

Delaney Dammeyer, MA nemi.
MA verkefni Delaney fjallar um samband klausturs við vatn með sérstöku tilliti til vatnsnotkunar, staðsetningu í landslagi, nálægð við náttúrulegt vatn og heimildum frá 14. og 15. öld til þess að rannsaka hvernig vatn var notað í helgisiðum klaustra. Að auki hefur Delaney áhuga á blöndun Kristnitrúar og þjóðtrúa á vatni og leitast eftir því að sjá hvort ummerki um slíkt sé að sjá á klausturstöðum.

Daníel Freyr Ívarsson, BA nemi.

Sigþór Bjarmi Geirsson, BA nemi.

Þorgerður Hjelm Daníelsdóttir, BA nemi.
Önnur sérfræðivinna:
Lynda Howard, PhD skordýraleifafræðingur og sjálfstæður fræðimaður. Viðfangsefni: Ábyrg fyrir því að skoða skordýraleifa sem finnast í fornleifauppgröftum verkefnisins.
Scott Riddell, MA í fornleifafræði, doktorsnemi í umhverfisfornleifafræði. Viðfangsefni: Mun skoða og greina vistfræðilegar leifar eins og til dæmis frjókorn.
Sigriður S. Ebeneserdóttir, BA og MA í mannfræði, doktorsnemi í Háskóla Íslands. Viðfangsefni: Mun sjá um rannsóknarvinnu og greiningu á DNA gögnum hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Tina Jakob, líffornleifafræðingur og sérfræðingur í fornleifafræðilegum vísindum hjá Durham háskóla. Viðfangsefni: Ber ábyrgð á ísótópa greiningum, greiningum á sýnum úr manna og dýrabeinum. Mun einnig leggja til túlkanir og greiningar á ýmsum líffornleifafræðilegum hlutum sem tengjast verkefninu.